top of page

SKILMÁLAR

UPPLÝSINGAR

​

Vefverslunin 10 AUR er rekin af Arctic Productions ehf., kennitala 490421-1570, VSK nr. 141679.

 

10AUR

Sími: 772-6999

Heimilisfang: Skeljatangi 34, 270

Netfang: info@10aur.is

​

​

Með því að versla á síðunni okkar samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

​

AFHENDING OG ÁHÆTTUSKIPTI

​

Afgreiðslutími pantana er 1-7 virkir dagar.

Sé vara ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd sé þess óskað.

​

Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang og velja réttan afhendingarmátar við pöntun. Vörur eru póstlagðar næsta virka dag eftir pöntun nema á álagstímum þá getur afgreiðslutími lengst en við reynum eftir bestu getu að koma pöntunum á sem fljótasta máta til kaupanda.

​

Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

​

10AUR ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá 10AUR til kaupanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.

​

GREIÐSLA OG SENDINGARKOSTNAÐUR

​

Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum.
Öll vinnsla greiðslukorta-upplýsinga fer fram í öruggri greiðslusíðu RAPYD.

​

Ef greitt er með kredit-, debetkortum í gegnum örugga greiðslusíðu er korthafi fluttur á viðeigandi vef þegar kemur að greiðslu. Greiðslur með kredit- og debetkortum eiga sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram.10AUR tekur því hvorki við né geymir kortaupplýsingar.

​

Óski kaupandi eftir því að greiða með millifærslu skal leggja inn á reikning Arctic Productions ehf. innan 24 klst. frá kaupum og senda kvittun úr heimabanka á info@10aur.is.

​

Berist greiðsla ekki innan þess tíma er pöntunin ógild.

 

Reikningsnúmer er 0515-14-007832, kt. 490421-1570.

 

Sendingakostnaður er reiknaður í greiðsluferli.


Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti.

​

VERÐ

​

Öll verð í vefverslun eru gefin upp með inniföldum 24% virðisaukaskatti en sendingarkostanður bætist við áður en greiðsla fer fram.

​

10AUR áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í verslun.

 

VÖRUSKIL

​

Skilaréttur er 14 dagar frá móttöku vöru. Varan þarf að vera heil og í upprunalegum umbúðum ásamt framvísun kvittunar eða annarri staðfestingu á greiðslu.

​

Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana. Athugið að ef greitt var fyrir vöruna með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort.

​

Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema um gallaða vöru sé að ræða og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist 10AUR.

​

Fyrirspurnir varðandi skil skal senda í tölvupósti á info@10aur.is

​

FRIÐHELGISSTEFNA & PERSÓNUUPPLÝSINGAR

​

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.

Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum, að undanskildum Íslandspósti sem sér um allar sendingar.

​

FYRIRVARI

​

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur á milli aðila skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.

 

ANNAÐ

​

Vörur seldar í vefverslun 10AUR eru til persónulegra nota eingöngu.
Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum seldar á vefversluninni án tilskilinna leyfa.

 

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu?

 

Sendu okkur póst á info@10aur.is

Payment Methods
bottom of page